Hér eru hlutirnir að gerast!
06.01.2008 22:25:16 / frú Daisy

Loksins loksins

Gleðilegt ár!

Já ég er svo sannarlega á lífi þó það tók mig ár að koma hingað á nýjanleik:o

Já árið 2007 fór svo sannarlega ekki í danska heldur að afbla mér holda svo ég gæti haft meira til að ná af mér 2008 og sett frábærar fyrir og eftir myndir HAHA:^)

Já ég mun byrja á morgun 150% og ekki taka pásu á árinu því ég vil ekki vera svona lalalala eftir að hafa séð mynd af mér áðan þrátt fyrir að ég var löngu búin að ákveða að byrja á morgun þá bara omg ég er ekki svona feit :o en ég ætla seinna stolt að skoða þess mynd og segja ég var svona feit en er núna svona taramm;)

Mér þótti ótrúlega vænt um kommentin frá ykkur og trúið mér ég ætlaði að skrifa þegar ég sá þau en þar sem ég var einhvernvegin ekki alveg að byrja aftur í hjartanu treinaði ég að skrifa..... Ég meira segja ætlaði ekkert endilega að byrja aftur að skrifa á þessa síðun en úrslitavaldið var í kvöld  þegar ég að gamni mínu fór aftur hingað inn og sá kveðjurnar frá ykkur aftur á síðustu færslunni minni

En knús & kram og kraftur fyrir árið 2008 þar sem nýir og betri hlutir gerast


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 01:00:52 / frú Daisy

Hraðahindrun

Hæ margir kannski búin að gefa mig upp á bátinn? En nei ég er hér enn og marg sinnis búin að blogga í huganum en ekki alveg ratað hingað, tæknin ekki alveg orðin það góð að það sé nóg að hugsa þetta.

Nú er stóra hraðahindrunin mín búin að vera sem er 15 kg en ég er margsinnis búin að fara niður fyrir 15 en aftur rétt yfir alveg þvílíkur daðurdans búin að vera hringinn í kringum 15 en nú er ég að taka á stóra mínum og ætla að takast á krafti við seinni helminginn en það er reyndar búið að vera brjálað að gera hjá mér miklar breytingar ég flutti eins og kunnugt er og er enn að koma mér fyrir svo byrjaði ég í nýrri vinnu og er ég að finna nýja rútínu í kringum það með mataræðið og annað svo skellti ég mér út fyrir landsteinana já svo hef ég ekki mætt í vigtun í 3 vikur sussum svei en þetta er allt að komast í full swing hjá mér á ný.

Gaf mér aldrei tíma í að segja frá síðustu vigtun hún var ok en vantaði 600´gr í 15 kg svo nú er bara að mæta í vigtun og fara að fá 15 kg skjalfest og stimpluð:lol:

Svo var ég búin að vera að bæta mig og bæta í hlaupunum og ætla að halda því áfram og fara að lyfta var bara búin með eitt skipti fyrir utanlandsferðina.

En nóg í bili


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 23:21:50 / frú Daisy

plús / mínus

Já það eru búnar að vera góðar og ekki góðar fréttir hehe en engar slæmar svosem:$ nema þá hvað ég hef ekki gefið mér tíma til að blogga og kíkja á ykkur en bætí úr því strax!

Já á mánudaginn fór ég í vigtun og góðu fréttirnar voru að það voru farin 1.9 kg frá síðustu vigtun sem ég mætti í en vondu að ég var farin aðeins ofar en nokkrum dögum áður og var 103,5 kg en strax deginum eftir var vigtin komin aftur niður um 1,2 kg urr hvað er málið?! svo á föstudeginum í þessari viku var ég komin í 101,7 búin að vera þrusu vika og bara gaman búin að vera þvílíkt dugleg að mæta alla dagana að hlaupa og svitna vel og tek alltaf 300 magaæfingar sem ég tel og svo allskonar í viðbót sem ég tel ekki en þó ekki í hundruðum talið. 

En nú er að nálgast mánudag og þá fer vigtin aftur aðeins upp! :evil:Meiri stríðnispúkinn þessi vigt en ég veit maður á ekkert að vera að máta hana á hverjum einasta degi *fliss*

 En best að fara að skoða hvað þið hinar eruð búnar að vera duglegar svo blogga ég á morgun eftir vigtunina og bara vona að vigtin hrekki mig ekki heldur sýni sínar bestu hlið.


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 20:38:15 / frú Daisy

Daður og þvaður ?!?

Ég er hér enn sko ekkert að óttast að ég sé í uppgjöf:lol:

En vá hvað gekk þrusu vel eftir síðustu færslu vigtin fór bara á methraða niður og á föstudeginum vantaði einungis 100 grömm í 15 kg og en þrír dagar til stefnu á vigtunardaginn ennnnnnnn svo hófst geðveikin við fengum afhenta íbúðina okkar og enginn tími fyrir DDV bara flytja flyta flytja og allt það sem því fylgir og þar sem ég er búin að standa í þessum flutningum að mestu leiti ein þá hefur matur farið lönd og leið en ég get farið að anda aftur og hugsa um að borða svo við skulum bara halda aðra flugferð niður;) ég er búin að vera að dansa samt við 15 kg létt daður munar svona 300-500 gr þessa dagana en nú er bara að halda áfram með þar sem frá var horfið strax á morgun.

Komst ekki í vigtun síðast þar sem ég var á fundi en verð að mæta næst.


» 10 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 00:07:44 / frú Daisy

hömmm...

Uss ekki að standa mig í bloggi eða bloggrúnt en reyndar mikið um að vera er að flytja verið að pakka og pjáldrast. En takk sætastar fyrir kommentin ykkar alltaf gaman að lesa þau.

Jæja þá er komið að játningunni síðasta vika var ekki góð hjá mér fór 2x í ræktina semsagt slappt og svindlaði smá en aðalega ekki góð útaf ég borðaði ekki nóg enda fékk ég að finna fyrir því þyngdist en svo seig hún aftur og var bara mínus 200 grömm á vigtunardeginum:( en núna í morgun vantaði bara 200 grömm upp á að vera búin með 14 kg  þannig mig langar svakalega að eiga geggjaða viku og ná að komast í mínus 15 kg:haha: bjartsýn:P en það eru þá 1,2 kg á 5 dögum sjáum til...

Svo var afmæli um helgina líka það er ekkert búið að vera nema afmæli afmæli og aftur afmæli en nú kemur smá hlé á þetta ;)

Annars um daginn fór ég á BMI töflu/reiknisleit á netinu og fyndið hvað þær eru misjafnar en þessi er ansi skemmtileg ef þú vilt fá mjónu pepp *fliss*http://www.manneldi.is/greinar/greinasafn/manneldi/nr/338 er bilaður kemur bmi stöðull þinn er 0 þú telst of grannur haha.

Jæja pæjur læt þessu lokið nú


» 8 hafa sagt sína skoðun

07.10.2006 01:46:26 / frú Daisy

kílóin hér og kílóin þar...

jahérna var ekki strax að átta mig á þessum breytingum, hélt þetta væri bilað um daginn þegar ég ætlaði að blogga:lol:

Komst ekki í vigtun á mánudag svo ég vigtaði mig heima og -1 kg fór aftur en afmæli um helgina og fleira dró greinilega strik í reikninginn þar sem það var farið meira fyrir helgi:P en svona er þetta stundum, Rósa búin að vera í heimsókn og ræktin legið á hillunni fór síðasta sunnudag og svo ekki aftur fyrr en í dag8| ussusss ætla að fara alla helgina! Gleði efni var svo eftir síðustu færslu komst ég í einar enn buxurnar er alltaf að græða ;) en þetta eru gallabuxur sem ég hafði rétt farið í örfá skipti nær ekki puttum beggja handa svo það var bara gaman er að ofnota þær núna áður en þær verða of stórar haha er þetta ekki viðhorfið sem maður verður að hafa *fliss*

Jæja fyrst ég kann á þetta aftur þá verður ekki langt í næsta blogg, annars finnst mér vikurnar bara fljúga áfram varla búi í vigtun þá er komið aftur að vigtun.


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.10.2006 01:43:12 / frú Daisy

Hókus pókus

Að kílóin hverfi....:P I whiss en skemmtilegra að maður hafi afrekað þetta sjálfur þegar að lokapunktinum kemur...

Ég tók í vikunni málbandstékk sem kom skemmtilega á óvart hellingur af cm foknir :D mátaði svo tvennar buxur og bingó gat hneppt þeim en aðrar mátaði ég ekki alls fyrir löngu eða um mánuður síðan og gat engan vegin hneppt:D svo jibbý. Í dag prófaði ég svo brjóstahaldara sem ég keypti fyrr á árniu án þess að máta og kom bandinu engan vegin utan um mig er ekki teygjanlegur (var í réttri skálastærð) en mátaði yfir bol áðan og jibbý gat krækt svo ég get byrjað að nota hann loksins!

Mátaði svo fullt af bolum og vá hvað ég hlakka mikið til að halda áfram að minnka.

Jæja vildi bara blogga smá, smús!


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 19:46:08 / frú Daisy

Þessi fallegi dagur

 Úrslit vikunnar eru 1 kg í mínus svo það eru farin 12 kg ekki leiðinlegt það:) safnast saman... Hef alveg farið eftir öllu DDV nema á sunnudaginn:klikk: ákvað ég að svindla vildi ekki missa of mikið sko *hóst* kom stundarbrjálæði yfir mig að fá mér súkkulaði ég sem hafði ekki haft neina nammilöngun í nokkrar vikur ákvað að fá mér:o en eins og ég hef oft sagt áður mun ég leifa mér að fá mér e-ð annað slagið í upphafi ætlaði ég nú að hafa mína nammidaga 1x í viku en það hefur aldeilis breyst engir nammi dagar en mun leifa mér e-ð stundum utan DDV nammisins.

Hunskaðist í ræktina í dag var í engum gír en dreif mig samt og vá hef aldrei verið svona glötuð, dagsformið var upp á hið versta frá upphafi! á ég að kenna súkkulaðinu um haha nei segi svona. Ég var frekar róleg meirihlutann af 25 mínútunum á crossaranum kannski strákurinn við hliðiná hafi dregið alla orku úr mér hann var á billjón:P var svona að spá í hvort það væri ekki bara hægt að virkja hann þyrfti ekki að gera virkjanir. Var að hugsa fyrstu 19 mínuturnar á crossaranum æ á ég ekki bara að taka 40 mín hér nenni ekki að hlaupa í dag en ákvað svo að hlaupa eftir að hafa klárað 25 mín svo það var smá af viti tók svo 200 magaæfingar en ég er búin að vera að taka 200 venjulegar svo allskonar auka sem ég tel ekki, já bumbos maður er farin að telja þegar maður hefur engann til að blaðra frá sér allt vit;) fór svo í tvo göngutúra í dag einn langan og einn stuttann, ekkert smá gaman að fá svona smá sumar hér í haustsárið :$


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 00:47:13 / frú Daisy

Mánudagur til mæðu

 

 

Isss allavega eftir að hafa stigið á vigtina á laugardag og sunnudag og hún átti 400 gr eftir í 12 kíló þá var pínu svekkelsi að takast á við vigtunardaginn en bara pínu ;) þar sem 900 grömm í mínus eru alveg helling þannig séð var held ég bara of samviskisöm í gærkveldi:P átti eftir alla mjólkina og tvo skammta ávexti og dreif þetta ofaní mig tja og fékk mér um miðjan dag 2 pönnsur til að gleðja gestgjafann (hmm hvað ætli hafi veið í þeim) :D gaf samt yngsta barninu af þeim. En niðurstaðan er þá -11 kg :) Verð bara dugleg þessa vikuna ;)

                                                                  


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.09.2006 10:34:16 / frú Daisy

sunnudagur til sælu

Mér gengur alveg þrusu vel í þessu öllu núna hef reyndar ekki hlupið alla dagana í þessari viku en ekki útaf ég nennti því ekki bara var ekki hægt að fara alla en ekki má gleyma að ég labba á hverjum degi í hvaða veðri sem er og hef alltaf gert bara mis mikið, fór í gær í fjölskyldugöngu í 2 tíma í staðin fyrir að fara í ræktina.

Finnst eiginlegar alveg ótrúlegt að það er engin nammi löngun búin að vera ekki vottur! Ég sem hugsaði í byrjun ég mun leyfa mér að hafa mína nammi daga og gerði það í byrjun en svo fjöruðu þeir út og ekkert nammi er búin að vera í hva allavega 2 vikur verð að hugsa betur og telja hve langt er síðan (sunnudagsmorgunhugsunarleti). Ég er meira að segja farin að drekka mjólkina eintóma til að klára mjólkurskammtinn reyndar gleymi ég því stundum en þetta er heldur betur skref fram á við hjá mér. Líka ef maður heldur sig við nammidaga þá er alltaf í hausnum á manni nammihugsunin æ ætla að kaupa svona og fá mér svona og hættara við að hún dreifist á fleiri daga :S þó það hafi ekki verið ætlunin. Var samt engan veginn meðvitað hjá mér að hætta namminu bara gerðist smám saman. Líkaminn afeitrast? Er ekkert smá sátt við þetta allt. DDV mataræðið rúlar...

Nóg af blaðri best að skella sér í hlaupa gallann og koma sér í ræktina svo er urmull af heimsóknum á dagskrá í dag, eigið þið sælan sunnudag smús.                        

                                                                  


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 21:39:20 / frú Daisy

Fyrsti tugurinn búinn!

Jibbý skibbý! Það sem ég ætlaði mér þessa viku stóðst! Kílóin sem kvöddu voru -1,5 ég er rosalega sátt við það. Það sem meira er þá eru 10.1 kg farið:haha:og ég fékk lyklakippu í verðlaun :o Núna um þessar mundir kemst ekkert svindl að í huga mér maður er svo upp peppaður á að láta þessi kíló fara ;)vil bara hlaupa og hlaupa og borða og borða það sem er á listanum.

Jæja ekkert meira að frétta héðan held ég :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 01:55:19 / frú Daisy

Svitn.. svitn

Jæja minn er búinn að vera að hlaupa alla daga nema mánudag og föstudag í þessari viku:) Finnst hlaupa þolið orðið þokkalegt þó ég eigi að sjálfsögðu eftir að bæta það meira og meira.

Mataræðið er búið að vera DDV vænt að undanskyldri einni veislu já það eru allir bara í samsæri að hafa sem mest af veislum núna;) ég smakkaði bara smá köku og brauðrétt ekkert gos eða svoleiðis var hófsöm í þessu en það var bara ein veisla þessa helgi sem betur fer!

En eins og ég hef sagt þá mun ég fá mér e-ð svona extra í veislum og tillidögum. En ég hef verið alveg laus við sælgætis löngun í þó nokkurn tíma:) sem betur fer.

Jæja dúllur, takk fyrir kveðjurnar


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 16:42:25 / frú Daisy

what´s going on ?!?!?!?!?!

Ég trúi þessu EKKI:evil: urr ekkert smá fúlt ALLAR :cry:ndirsíðurnar horfnar!  What´s going on here? er ekkert smá svekkt:whut: Kom bara inn til að tékka á þessu hvort errorið væri farið og þá bara allt horfið.. Ef þetta á að haga sér svona að allt sem maður hefur gert hverfur er spurning um að flytja sig e-ð annað:!:

Well vona að það komi bara aftur inn:lol: reyni að vera bjartsýn fram á morgun með það. En ræktin var tekin með trompi áðan:P fór á crossarann í 25 mín fór 3,16km á að vera 365 kaloríur;) svona til gamans svo hljóp ég 3.1 km og teknar ágætis magaæfingar ohh hvað mér leið vel eftir ræktina fann alveg læri og rass voru að vinna heimavinnuna, brenna fituna burt:haha: vorum ekkert smá duglegar Bumbos!

Jæja krossa fingur að undirsíðurnar detti inn aftur..


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 20:10:50 / frú Daisy

Nýjar tölur

Jújú vigtin fór niður enda ekki annað tekið í mál eftir endalausa veislu helgi var niðurstaðar -800 gr hjúkk að engar veislur verða næsta helgi ætla að taka þessa viku með trompi og ná yfir kíló í mínus í næstu viku! Hef ekki haft tækifæri á að hlaupa um helgina enda ekki þverfótað fyrir boðum og stórveislum;) en bæti úr því núna.

Jæja vildi bara láta vita að vigtunartölum dagsins, sniglast þetta áfram en safnast þegar saman kemur aðeins 1,4 kg í 10kg:haha: ekkert smá gaman að spá í því. Bumbos þú sérð mig þegar þú kemur heim búin að missa 10 kg í +


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 23:36:34 / frú Daisy

Allt er á tjá og tundri..

Hello...

mín hélt "rætuninni" áfram í dag, hjólaði í ræktina fór svo á krossarann í 20 mín 3,64km og hljóp svo 1,5 km svitn svint svo gott.

En vá hvað maður getur verið skrítin, var búin að gefa börnunum að borða og sauð mér svo fisk át grænmetið á meðan og settist svo við tölvuna var búin að slökkva undir ætlaði að fá mér eftir smá svo var ég að gera hitt og þetta eins og gengur og rak þá augun í DDV ísinn sem ég hafði tekið út fyrir kvöldið (afþýða) hann var orðinn fínn til áts settist með hann við tölvuna svo fór ég að svæfa og svona nema á meðan fatta ég að ég borðaði aldrei fiskinn:lol: þannig að ég boraðaði hann rétt áðann, díses hvað tölvan getur látið mann gleyma sér:P(verð að kenna einhverjum um)

En í dag tók ég fataskápinn minn í gegn eða hann er allavega snirtilegur, tók allt úr honum og raðaði aftur. Tja margt flaug í gegnum hugann meðan ég fór í gegnum fötin sum föt mundi ég ekki að ég ætti sumt hafði ég kannski keypt með það að leiðarljósi að ég væri alveg að fara að passa í það hmm og voru allavega 3 ónotaðar flíkur með verðmiðum t.d. svartar fínar buxur sem ég hlakka bara til að passa í:D

En það eru ansi margir flokkar í fataskápnum, föt sem ég passa í, föt sem eru druslu föt geymd ef ég t.d. mála einhvertíman á ansi mörg þannig 8| föt sem ég á eftir að sigra eða hef stórt takmark að passa í síðar frá ýmsum tímum og veit ég mun ekki nota helminginn af þeim8| svo eru föt sem ég mun kannski aldrei nota aftur þó ég muni passa í þau en tími ekki að gefa/henda ef svo myndi vilja til að ég myndi vilja nota þegar ég verð mjó:!:

 Já, þar hafið þið það ég er stórskrýtin. Ég veit samt að þegar takmarkinu er náð þá munu þau ansi mörg fá að fjúka en ég er ekki tilbúin strax haha sum fötin hafa meira að segja tilfiningarlegt gildi:Pog bolir frá unglings aldri en mér tókst þó að fjarlægja 3 peysur og einn bol úr fataskápnum og einn brjóstahaldara í þessari senu verða örugglega fleiri í næstu.


» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti